onsdag den 18. marts 2015

Margt smátt gerir eitt stórt

Hvernig í veröldinni er hægt að svíkja hvert loforðið á fætur öðru og komast upp með það í íslenskri pólitík.  Og hvernig í veröldinni er hægt að sýna svona mikinn hroka og lítilsvirðingu við fólkið í landinu.  Er það orðið ósk stjórnmálamanna á Íslandi að lenda í sögubókum framtíðarinnar sem svikarar og lygarar?  Eða er þeim kannski bara skítsama um hvaða arfleifð þeir skilja eftir sig?  Ég hef fylgst með stöðunni heima í mörg ár en þetta hlýtur nú að fara að teljast met.  Við erum ekki ófáir Íslendingar sem búum erlendis og langar að flytja heim, en þorum ekki vegna þessara heljargreipa sem landið er í vegna óheiðarleika og spillingu hjá þeim sem eru við stjórnvölinn.  En það þýðir lítið að argast því stjórnmálamennirnir sitja sem fastast á sínum pinnum og munu sig ekki hreyfa, sama hvað.  Tökum bara fyrrverandi innanríkisráðherra sem dæmi.  Sú hélt nú aldeilis fast í stöðu sína og ætlaði sko ekki að gefa sig, þrátt fyrir mikla óánægju landsmanna með störf hennar.  Að ég tali ekki um dómarann sem fékk að dæma í máli bróður síns og sá ekkert athugavert við það.  Mér þætti áhugavert að sjá það reynt í öðrum löndum.    
Þegar fólk kemur saman og mótmælir er ekki endilega verið að sækjast eftir því að öll ríkisstjórnin segi af sér, heldur er verið að fara fram á að það sé byrjað að hlusta á raddir fólksins.  Íslendingar eru orðnir langþreyttir núna, það hljóta að vera takmörk fyrir því hvað hægt sé að bjóða fólki.  
Ég hef áður lagt til að við flytjum inn stjórnmálamenn að utan.  Fá óháða aðila til að hreinsa til í stjórnmálum heima og ryðja burt allri spillingunni sem fyrirfinnst m.a. vegna fjölskyldu- og vinatengsla.  Ef það er ekki hægt, þá er hér önnur tillaga.  Ekki stofna fleiri litla flokka.  Sameinið frekar minni flokkana heima svo þeir standi betur gegn þessum stóru sem hljóta að sökkva í sæ í næstu kosningum.  Ef það eru of margir litlir flokkar, þá hverfa atkvæðin í allar áttir og það sáum við m.a. í síðustu kosningum.  Ef við tökum Danmörku sem dæmi, þá eru hér 9 flokkar með fulltrúa á þingi (fyrir utan Færeyjar og Grænland) í 5 milljóna samfélagi og heima, í 330 þúsund manna samfélagi, eru 6 flokkar með fulltrúa á þingi og svo eru fleiri flokkar utan þings.  Þótt þessir flokkar séu með spennandi stefnuskrár, sniðnar að þörfum hvers og eins, þá er hættan sú að atvæði tapist þegar kemur að kosningum.  Sérstaklega núna er meiri þörf en nokkurn tíma áður á að minni flokkarnir snúi bökum saman til að koma núverandi ríkisstjórn af valdapinnanum og möguleikarnir á því aukast til muna við sameiningu þessara flokka.               

Ingen kommentarer:

Send en kommentar