torsdag den 13. november 2014

Hroki - einn versti eiginleiki í fari fólks!

Kæru ráðamenn Íslands.  Ég ætla að stíla þetta á ykkur þótt ég sé alls ekki viss um að þið munuð lesa þetta eða yfirhöfuð taka mark á þessum skrifum mínum.  En ég get bara ekki orða bundist.
     Á hverjum degi les ég greinar og pistla eftir fólk sem kallar eftir réttlæti og virðingu.  Á hverjum einasta degi!  Það er farið að svíða sárt að fólk skuli skrifa og skrifa, mótmæla og mótmæla og þrátt fyrir það skuli ekkert af ykkur taka af skarið, leggja hrokann og virðingarleysið á hilluna og setja fólkið í landinu í fyrsta sæti, eins og ykkur ber og voruð kosin til að gera.  Það er erfitt að halda áfram að fylgjast með fréttum að heiman því mér blöskrar svo svakalega framferði ykkar og spillinguna sem þið viðhaldið.
     Síðustu 16 árin hef ég búið í Danmörku svo ég hef samanburð.  Ég veit hvernig það virkar þegar ráðherrar vinna ekki sína vinnu og ljúga að samstarfsmönnum og þjóðinni allri.  Þannig fólk er látið fara eins og skot og ný, hæfari manneskja ráðin í staðinn.  Þið ættuð kannski að líta til annarra landa og læra hvernig þið viðhaldið virðingu og trausti þjóðarinnar, sérstaklega í ljósi þess að innanríkisráðherra Íslands er gjörsamlega vanhæf í starfi og lýgur ítrekað, en samt ekki látin fara.  Þetta er mér algjörlega óskiljanlegt og ég minni ykkur á, að ég hef samanburðinn.
     Fyrstu árin mín í Danmörku var orðstír íslendinga enn óflekkaður og ég man ekki annað en að stjórnmálamenn hafi notið ákveðinnar virðingar.  Í góðærinu fór þó að renna á mann tvær grímur og tók ég sérstaklega eftir því hvað stjórnmálamenn Íslands á þeim tíma voru hrokafullir.  Hroki er, að mínu mati, einn sá versti eiginleiki í fari fólks.  Gagnrýninsröddum var svarað með yfirgengilegum hroka og sérfræðingum úti í heimi bent á endurmenntun.  Ég fann fyrir nýrri og óþekktri tilfinningu á þessum tíma, að skammast mín fyrir að vera Íslendingur.  Sem betur fer geri ég það ekki lengur því ég tilheyri allt öðrum hópi af Íslendingum en þeim sem einkennist af hroka, frekju og yfirgangi.  Því miður, kæru ráðamenn, eruð þið að endurtaka leikinn frá því í góðærinu og sýnið af ykkur mikinn hroka og yfirgang sem mun að öllum líkindum keyra íslensku þjóðina í kaf.  Við verðum að skipta hroka út með auðmýkt til að eitthvað geti lagast í þjóðfélaginu.  Núna, rúmum 16 árum eftir að ég flutti frá Íslandi, er orðstír Íslendinga flekkaður, þökk sé heimskum og óheiðarlegum útrásarvíkingum, og ég myndi sannarlega hugsa mig tvisvar um áður en ég gerði viðskipti við Íslending.  Þið voruð ráðin til að bæta fyrir það sem stolið var af þjóðinni en í staðinn aukið þið bara á spillinguna og gerið lítið úr mótmælum fólksins!  Og hvað á það að þýða að gefa vel stæðu fólki leiðréttingu upp á fleiri milljónir sem þau þurfa ekki á að halda á meðan fólk sem er að missa húsin sín fá miklu minni upphæðir?  Margt af verst stadda fólkinu í dag tók einmitt ekki þátt í góðærinu, fór ekki í fimm utanlandsferðir á ári né keypti fjórhjól handa allri fjölskyldunni.  Ef ég myndi vinna vinnuna mína svona illa yrði ég rekin á staðnum!  
     Leiðréttingin var útúrdúr svo ég kem mér að kjarna málsins, sem í grófum dráttum er svohljóðandi:  Þið eruð búin að skemma fyrir unga fólkinu sem mun taka við af ykkur.  Þið eruð búin að glata trausti og virðingu flestra og það verður sannarlega erfitt fyrir komandi ráðamenn að byggja upp traustið á ný.  Nema auðvitað að komandi stjórnmálamenn verði jafn hrokafullir, þá mun staðan á Íslandi að öllum líkindum ekkert batna og líklegast bara versna mikið.
     Ég hef óbilandi trú á unga fólkinu á Íslandi, að þau muni snúa við blaðinu og laga óreiðuna sem þið eruð búin að skapa, og ég ætla að enda þetta á orðum Unnsteins í Retro Stefson:
,,Þið byrjið á að tapa tekjum sem skugga-eigendur flokkanna ykkar höfðu misst.  Og svo stoppið þið upp í götin með fjármunum þeirra sem minna mega sín."

Ingen kommentarer:

Send en kommentar