Það er snemma morguns. Ég sit úti á
verönd í sól og blíðu með fyrsta kaffibolla dagsins. Ég er með dagbókina mína fyrir framan mig og renni
í gegnum komandi verkefni. Þetta verður
æðislegur dagur, sólríkur og fullur af spennandi verkefnum. Svona eru flestir morgnar hérna hjá mér. Þó freistast ég annað slagið til að skoða
ástandið heima á hinum og þessum fréttamiðlum.
Hafa verið jarðskjálftar eða eru eldfjöll farin að bæra á sér? Fá landsmenn mínir að finna fyrir hlýjum
geislum vorsólarinnar eins og við hér í Danmörku? En í hvert skipti sem ég les fréttir að
heiman breytist þessi annars friðsæli morgunn í áhyggjur, reiði og síðast en
ekki síst undran. Eins og flestir vita
varð Ísland illa úti eftir hrunið og það hafði í för með sér langa og stranga
baráttu til að komast aftur í eðlilegt horf. Allir virtust tilbúnir til að gera það sem þurfti að gera til að laga
stöðuna en það sem í raun hefur gerst
er að þeir ríku eru að verða ríkari og þeir fátæku verða fátækari. Sú ríkisstjórn sem tók við eftir hrunið,
reyndi að rétta úr kútnum en það tók greinilega of langan tíma, sérstaklega
fyrir kjósendur með gullfiskaminni. Í kosningunum 2013 komust Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn aftur til valda. Stór hópur Íslendinga
varð orðlaus yfir þessum niðurstöðum og þjóðin skiptist í tvo hópa. Hópurinn sem ekki kaus þessa flokka varð
reiður þeim hópi sem kaus þá. Fyrir
kosningarnar var þjóðinni lofað gull og grænir skógar og ætla ég ekki að
áfellast þá kjósendur sem féllu kylliflatir fyrir þessum tómu loforðum. Fólk var orðið örvæntingarfullt og margir
höfðu misst hús sín, vinnu og lífssparnað. En það er eins og þessir stjórnmálamenn gætu með engu móti sett sig í spor kjósenda
sinna, þar sem þeir sjálfir koma frá nokkrum af ríkustu fjölskyldum landsins. Þá skortir skilning og samkennd með hinum
venjulega, íslenska launþega. Sorglegt
dæmi um það er þegar ung kona, þáverandi formaður ungra sjálfstæðismanna,
kvartaði yfir því opinberlega fyrir nokkrum árum, að ekki væri hægt að kaupa
hvítvínsflösku á sunnudegi. Ef hana
skyndilega langaði í humar á sunnudegi þá yrði hún að geta keypt góða flösku af
hvítvíni með. Ja hérna... er þetta framtíð
Íslands?
Ellilífeyrisþegar hafa misst lífeyri sinn, pening sem fólk hefur unnið
hörðum höndum fyrir og sem átti að tryggja þeim góða og áhyggjulausa framtíð á
efri árum. Hvað ætli hafi orðið um þann pening?
Var honum mokað undir einhverja aðra... einhver hlýtur að hafa fengið
hann eða hvernig virkar þetta annars þegar fingralangir næla sér í annarra
manna fé? Svo eru það launin. Kennarar í fullu starfi geta með lélegu móti
lifað af launum sínum. Læknar og
hjúkrunarfræðingar eru flúnir til annara landa þar sem þeir fá mannsæmandi laun og vinnutíma. Íslendingarnir sem eftir eru þakka bara
fyrir þá sem ekki eru flúnir... enn! Réttur Íslendinga til að ákveða hvort Ísland
eigi að ganga í ESB var tekinn frá þeim.
Svona er hægt að halda áfram endalaust.
Faðir minn er 68 ára gamall sjómaður sem hefur átt við veikindi að
stríða. Hann vinnur og vinnur hvern
einasta dag án þess nokkurn tíma að eiga möguleika á rólegu ævikvöldi. Í hvert skipti sem hann og mamma
borga reikninga sína, hækkar höfuðstóllinn.
Fólk borgar og skuldin vex. Þetta er algjörlega óskiljanlegt ástand... fólk missir löngun og tilgang til að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Sama gildir
fyrir okkur sem höfum tekið námslán. Við
borgum en lánið verður bara hærra og hærra.
Bankaráðgjafi minn hér í Danmörku féll næstum í yfirlið þegar hún sá
hvað námslánið mitt er búið að hækka mikið síðustu árin. En hér er ég í fullu starfi sem kennari og get auðveldlega lifað af launum
mínum. Mikið vildi ég óska að foreldrar mínir og aðrir venjulegir launþegar gætu
gert það sama. Lifað af launum
sínum. Og það er ekki eins og beðið sé um eitthvað meira en það!!
Það eru til svo margir góðir og heiðarlegir Íslendingar sem gætu breytt
stöðunni ef þeir bara fengu tækifæri til þess.
Að taka til í stjórnmálum og hreinsa út alla spillinguna og óréttlætið í
“kerfinu”. Til að mynda getur maður
auðveldlega auglýst íbúðir til leigu á svörtum markaði sem gerir það að verkum að
leigumarkaðurinn er ósanngjarn og erfiður. Svo er það öll þessi ólöglega starfsemi á vinnumarkaðinum... lítið mál að fá ,,svarta" vinnu. Hvers vegna er eftirlit svona lítið? Að lokum bitnar þetta að sjálfsögðu á þessu litla
samfélagi okkar sem er svo brotið fyrir. En
það er kannski kjarni málsins.
Samfélagið er svo lítið að það er erfitt að komast að fyrir þá sem vilja
og geta breytt einhverju. Maður þarf að
hafa réttu samböndin og þekkja einhvern sem þekkir einhvern. En þangað til sá dagur kemur að það verður
hreinsað út og tekið rækilega til (ég mæli með því að flytja inn erlenda
stjórnmálamenn með reynslu og engin fjölskyldu- eða vinatengsl), þá verða þeir
ríku ríkari og þeir fátæku fátækari. Ég
hef verið í Danmörku síðan 1998 svo ég hef getað fylgst með stöðu mála heima úr
“öruggri” fjarlægð. Líka þegar allt gekk
eins og í sögu og fólk lifði sinni konunglegu tilveru án þess að spá í það eina
mínútu að þessi bóla myndi springa einn góðan veðurdag. Nú flýr fólk landið í stríðum straumum og ég
hef hitt sumt af þessu fólki. Þau eru
mörg hver reið, döpur og vonsvikin. En hvað
með fólkið sem eftir er? Harðduglegu
Íslendingarnir sem ennþá harka af sér hvern einasta dag undir erfiðum kringumstæðum
og sem enn trúa því að þetta verði betra.
Það er fyrir þetta fólk að ég skrifa þessa grein. Því þegar ég sit á veröndinni minni, í morgunsólinni
og hlakka til að fara í vinnuna, þá leita hugsanir mínar til fólksins heima,
sem vinnur hvern dag hörðum höndum fyrir léleg laun í von um að samfélagið nái
sér á ný.
Takk fyrir þessa grein .... hún segir allan sannleikann tæpitungulaust.
SvarSletKærar þakkir :-)
SletÞegar íslenskar konur vakna og fara að krefjast réttl´tis fyrir heimilin og fjölskyldurnar þá gerist eitthvað gott, loksins.
SvarSletTakk Dóra fyrir þessa góðu grein sem segir svo margt satt og rétt, því miður.